Álagningu fasteignagjalda í Fjallabyggð 2021er nú lokið.

Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2021 eru aðgengilegir í gegnum rafræn Fjallabyggð, íbúagáttina á heimasíðu Fjallabyggðar, undir fasteignagjöld. Einnig eru þeir aðgengilegir á islands.is. 

Álagningar- og breytingarseðlar verða ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignagjalda rafrænt.

Ef nauðsyn krefst er hægt að óska eftir því að fá senda álagningarseðla / greiðsluseðla, vinsamlegast hafið samband í síma 464-9100 eða á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is

Gjalddagar fasteignagjalda verða tíu, frá 1. febrúar til og með 1. nóvember 2021.

Hægt er að greiða fasteignagjöld með boðgreiðslum. Ef þess er óskað vinsamlegast hafið samband við skrifstofur Fjallabyggðar sem fyrst.

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Ekki er þörf að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is eða hringja í síma 464-9100

Álagningarreglur fasteignagjalda 2021