Í síðustu viku fóru nemendur Í 9. – 10. bekkja Grunnskóla Fjallabyggðar ásamt umsjónarkennurum sínum og fleiri starfsmönnum til Akureyrar á Starfamessu.

Tilgangurinn með Starfamessu er að ungmenni kynnist þeirri fjölbreyttu atvinnustarfsemi og þeim möguleikum sem bíða þeirra í framtíðinni.

Starfamessan var haldin í Háskólanum á Akureyri og fjöldi fyrirtækja og stofnana tóku þátt í henni og kynntu störf sín.

Nemendur voru áhugasamir og fengu tækifæri til að skoða og prófa ýmislegt. 

Sjá myndir: HÉR

Forsíðumynd/Grunnskóli Fjallabyggðar