Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa.

Í ár verður haldin minningarathöfn við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi sunnudaginn 19. nóvember. Öll eru velkomin. 

Einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðilar munu einnig standa fyrir táknrænum athöfnum víða um land, sunnudaginn 19. nóvember og verður streymt frá einhverjum þeirra á Facebooksíðum björgunarsveita og slysavarnadeilda.

Að baki minningardeginum standa auk Samgöngustofu, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan og Vegagerðin.