Ákveðið hefur verið að halda atvinnulífssýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki dagana 20.-21. maí nk.
Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í Skagafirði, vekja jákvæða athygli á samfélaginu, kynna sprota og nýsköpun í atvinnulífi og síðast en ekki síst skapa skemmtilegan viðburð í Skagafirði.
Atvinnulífssýningin verður haldin með sama sniði og fyrri sýningar árin 2010, 2012, 2014 og 2018. Sýnendum gefst kostur á að kynna starfsemi sína í sérstökum básum í íþróttahúsinu en jafnframt er heimilt að selja þar vörur. Þá stendur til að halda málstofur um fjölbreytt málefni sömu daga.
Svið verður á sýningarsvæðinu og hin ýmsu atriði sem fólk vill bjóða upp á eru mjög velkomin!
Nánari upplýsingar og skráningarblöð má nálgast á vefsíðunni skagafjordur.is á næstu dögum.