Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 9. mars 2023 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi 2014-2026 skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 þar sem breytt landnotkun, stækka reiti eða endurskilgreina landnotkun á nokkrum stöðum innan Hvammstanga.

Annars vegar er um ræða breytingu á íbúðarbyggð ÍB 9 við Lindarveg og hins vegar breytingar á íbúðarbyggð Í7 sunnan við Eyri og tilfærsla á landnotkunarreit AT3. Enn fremur skilgreining á svæði fyrir verslun og þjónustu við Lindarveg. Íbúðarsvæðið við Lindarveg er í uppbyggingu og eru þar risin nokkur íbúðarhús.

Svæðið er skv. núgildandi skipulagi skilgreind sem svæði fyrir frístundabyggð en með þessari breytingu er verið að fella þá skilgreiningu niður. Svæðið sunnan og norðan við Eyri þar sem breytingin nær til, eru að mestu tún og beitarlönd og byggt hefur verið á öllum fjórum lóðunum á svæði ÍB7.

Deiliskipulagsbreytingar eru unnar samhliða aðalskipulagi og er tillögurnar auglýstar samtímis.

Föstudaginn 12. maí 2023 frá kl. 10:00-12:00 gefst kostur á að koma og kynna sér umræddar breytingar í ráðhúsi Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5.

Breyting á aðalskipulagi Húnaþings vestra 2014-2026 má nálgast hér á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is

Frestur til að skila inn athugasemdum eða ábendingum rennur út 16. júní 2023, og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfapósti stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.