Sveitarfélagið Skagafjörður og Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði leita eftir ljósmynd til að prýða forsíðu á Skagafjarðakorti sem gefa á út í janúar.
Skagafjarðarkortið er helsta kynningarefni fyrir Skagafjörð og er dreift á ferðaþjónustuaðila og allar upplýsingamiðstöðvar á Íslandi.
Leitað er af fallegri mynd af Drangey, Málmey eða Þórðarhöfða. Áhugasamir sendi mynd á sigfusolafur@skagafjordur.is.
Greitt verður fyrir þá mynd sem valin verður á Skagafjarðarkortið.