Það er hátíðlegt um að litast í desember hjá SÁÁ. Búið er að skreyta hátt og lágt, setja upp jólatré og von er á dýrindis mat á hátíðunum segir á heimasíðu SÁÁ.

Rúmlega 130 einstaklingar verða í meðferð hjá SÁÁ yfir hátíðarnar og starfsfólk leggur sig fram við að skapa hlýlega jólastemmningu.

Eins og áður verður boðið upp á hátíðarmat og allir sjúklingar fá bók í jólapakka á aðfangadagskvöld.

“Mjög margir eru í meðferð á jólunum. Fólk lætur það ganga fyrir að ná sér vegna áfengis- og vímuefnavanda, þrátt fyrir hátíðirnar,” segir Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri sjúkrahússins Vogs.

“Útlit er fyrir að nær öll rúm á Vík verði fullnýtt á jólum og áramótum og sömuleiðis á sjúkrahúsinu Vogi. Líklega verða þó engir unglingar hjá okkur á jólum sem er ánægjuefni. Síðan eru það þeir sem búa hjá okkur í búsetuúrræðinu Vin, þeir halda jól, fagna áramótum og njóta eins og við öll.”

SÁÁ óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þakkar fyrir góðan stuðning á árinu sem er að líða.
Bati er besta jólagjöfin.

Mynd: SÁÁ