Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn Almannavarna eru nú farin að greinast smit á Norðurlandi vestra. Hún telur sig vera að ná utan um þau en hvetja til sérstakrar varkárni á öllu svæðinu.

Foreldrar í Grunnskóla Húnaþings vestra eru beðnir um að halda börnum sínum heima ef þau sýna einhver flensulík einkenni og hafa samband við heilsugæslu og láta meta hvort þörf er á sýnatöku.

Einnig eru ítrekaðar einstaklingsbundnar sóttvarnir.