Lagt fram vinnuskjal bæjarstjóra á 672. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar, þar sem fram kemur að í samræmi við samþykkt bæjarráðs Fjallabyggðar á 668. fundi þann 22. september 2020, hafa framkvæmdastjórar sveitarfélaganna Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar sett upp áætlun um viðræður framtíðarfyrirkomulags brunavarna.

Með fundargögnum fylgdi samantekt af vinnufundum frá 28. september, 9. október og 13. október.

Að mati framkvæmdastjóranna er nauðsynlegt að fá samþykki sveitarfélaganna á aðkeyptri þjónustu fagaðila við úttekt á hagkvæmni sameiningar brunamála.

Lagt er til að kostnaður af slíkri úttekt skiptist á milli sveitarfélaganna eftir íbúatölu.

Leitað var til þriggja aðila um að leggja inn áætlun í úttekt á núverandi stöðu og mat á kostum og göllum sameiningar. Áætlanir eru byggðar á gögnum sem send voru og fundum aðila með framkvæmdastjórum sveitarfélaganna. Tveir skiluðu inn áætlun, upplýsingar um að þriðji aðilinn hefði áhuga á að skila inn áætlun bárust of seint.

Framkvæmdastjórar sveitarfélaganna leggja til að gengið verði til samninga við HLH ráðgjöf á grundvelli fyrirliggjandi áætlunar. Samkvæmt áætluninni ættu niðurstöður vinnunnar að liggja fyrir eigi síðar en 21. nóvember næstkomandi.

Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við HLH ráðgjöf á grundvelli fyrirliggjandi áætlunar og að kostnaður vegna úttektar HLH ráðgjafar skiptist á milli sveitarfélaganna eftir íbúatölu. Bæjarstjóra er falið að leggja fram viðauka á næsta fundi bæjarráðs.