• 200 g hrísgrjón
  • 600 g fiskur (ýsa eða þorskur)
  • 2-3 msk majónes
  • 200 ml rjómi
  • 50-100 g parmesanostur (má sleppa)
  • 1-2 tsk karrý
  • 1 tsk gróft sinnep
  • 1/2 vænn blaðlaukur (skorinn í sneiðar)
  • 1 box sveppir (skornir í sneiðar)
  • 200 g ostur
  • salt og svartur pipar

Sjóðið grjón samkvæmt leiðbeiningum og setjið í eldfast mót þegar þau eru nánast soðin. Skerið fiskinn í bita, saltið og leggið fiskinn ofan á grjónin.

Sósa: Blandið rjóma, majónes, parmesanosti, karrý, sinnepi, svörtum pipar og salti í skál og hrærið vel saman.

Hellið sósunni yfir fiskinn og grjónin. Að lokum, blandið sveppum og blaðlauk saman og leggið yfir fiskinn. Toppið svo með rifnum osti, Þetta er svo bakað við 180° í 30 mínútur.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit