Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir neitar því ekki að niðurstaða forvalsins var sannarlega óvænt. Um leið og hún þakkar öllum þeim sem studdu hana til forystu tilkynnti hún fyrir skömmu að hún hyggst taka annað sætið á lista VG í Norðausturkjördæmi.

Óskar hún Óla Halldórssyni til hamingju með fyrsta sætið og öllum hinum sem hlutu kosningu og hlakkar til að vinna með þeim og öllum sínum góðu félögum í Norðausturkjördæmi.

Fram undan eru mikilvægar kosningar segir hún og ætlar að leggja allan sinn kraft í að Vinstri græn hljóti góða kosningu. “Við getum óhrædd lagt okkar góðu verk fyrir kjósendur í haust. Áfram VG”, segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir að lokum á facebook síðu sinni.

Mynd/af bacebook síðu Bjarkeyjar Olsen