Heilsueflandi samfélag og Fjallabyggð bjóða í líkamsrækt undir leiðsögn löggiltra einkaþjálfara í líkamsræktum Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar næstu fjórar vikur.
Aðgangur að líkamsræktinni verður gjaldfrjáls á þessum tímum.
Á Siglufirði mun Guðrún Ósk Gestsdóttir, einkaþjálfi, annast leiðsögn dagana 15. október, 22. október, 29. október og 5. nóvember frá kl. 17:15 – 18:15.
Í Ólafsfirði mun Sólveig Brynjudóttir, einkaþjálfi, annast leiðsögn dagana 10. október, 17. október, 24. október og 31. október frá kl. 17:15 – 18:15.
Líkamsrækt undir leiðsögn einkaþjálfara er örugg leið til árangurs.