Athöfninni, þar sem íþróttamaður Fjallabyggðar er útnefndur, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna hertra sóttvarnarreglna. Athöfnin átti að vera á morgun, þann 28. desember.

Staðan verður tekin aftur um miðjan janúar og vonandi verður hægt að vera með viðburð í einhverju formi fljótlega eftir það og tilkynna um val á besta og efnilegasta íþróttafólki í Fjallabyggð.

Mynd/Frétta- og fræðslusíða UÍF