Jóna Margareta Júlíusdóttir Lundberg hefur hafið störf á fjölskyldusviði Húnaþings vestra.

Hún sinnir starfi ráðgjafa á sviðinu fyrir börn og í málefnum fatlaðra. 

Viðvera Jónu Margaretu er alla jafna að morgni í Grunnskóla Húnaþings vestra en á skrifstofu fjölskyldusviðs í Ráðhúsi eftir hádegi. 

Netfang hennar er jona@hunathing.is.

Mynd/Húnaþing vestra