Árið 2023 var skipaður starfshópur um eignir, lóðir og lendur í eigu sveitarfélagsins. Í vinnu hópsins kom fram þörf á endurskoðun húsnæðismála þjónustumiðstöðvarinnar og þá hefur verið umræða um þörf á nýju og betrumbættu húsnæði fyrir slökkviliðið.
Nú hefur verið stofnaður starfshópur um byggingu björgunarmiðstöðvar til að greina þörf á byggingu miðstöðvar af slíkum toga og hvernig það húsnæði þyrfti að vera samsett og hvar það ætti helst að vera. Í hópnum eiga sæti fulltrúar sveitarstjórnar, slökkviliðsstjóri, byggingar- og skipulagsfulltrúi og fulltrúi björgunarsveitarinnar Húna.
Í erindisbréfi starfshópsins kemur fram að hann skuli starfa frá 10. janúar 2025 til 15. apríl 2025 og skuli að störfum loknum skila samantekt til sveitarstjórnar með tillögum að næstu skrefum.