Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra fyrr í dag var samþykkt að veita Björgunarsveitinni Húnum styrk að upphæð 1. millj. kr. fyrir óeigingjarnt starf, oft við erfiðar aðstæður, í þágu samfélagsins.

Sveitarstjórn færir öllum starfsmönnum sveitarfélagsins, annarra stofnana og öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem leggja á sig gríðarlega vinnu í þágu samfélagsins við fádæma erfiðar aðstæður bestu þakkir. Þetta fólk leggur nótt við dag til að lámarka þann skaða sem orðið hefur og koma sveitarfélaginu okkar á rétt ról.

Mynd: Björgunarsveitin Húnar