Magnús Magnússon formaður Björgunarsveitarinnar Stráka fékk afhentan nýjan fólksflutningabíl fyrir sveitina um síðustu helgi.

Bíllinn sem er 8 manna fjórhjóladrifinn Benz Vito var áður í eigu Björgunarsveitarinnar Suðurnes og er 2014 árgerð.

Mikil fjölgun á virkum félögum í sveitinni varð til þess að þörf var á bíl sem þessum til flutninga á mannskap í útköllum, æfingum og á námskeið fjarri heimabyggð. Þannig minnkar einnig notkun á breyttum bifreiðum sveitarinnar til lengri ferða og innanbæjar sem skilar mikilli hagræðingu.

Bíllinn er útkallsklár með öllum helsta búnaði til forgangsaksturs og fjarskipta en stefnt er að því að sérútbúa hann til notkunar fyrir drónadeild sveitarinnar og færanlega stjórnstöð þegar þess er þörf.

Frábær viðbót í tækjakost sveitarinnar og er félögum á Suðurnesjum þakkað fyrir liðlegheit og vinarþel við þessi kaup.

Mynd/Björgunarsveitin Strákar