Nýtt hafrannsóknaskip verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni 15. desember nk.

Við sjósetningu mun skipið formlega hljóta nafnið Þórunn Þórðardóttir og fær það einkennisstafina HF 300. Skipið mun draga nafn sitt af Þórunni Þórðardóttur sem var fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum og var m.a. frumkvöðull í rannsóknum á frumframleiðni smáþörunga í hafinu við Ísland.

Eitt helsta afrek Þórunnar voru rannsóknir og mat á heildarfrumframleiðni svifþörunga á Íslandsmiðum en svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins. Þórunn var jafnframt á meðal fyrstu sjávarlíffræðinga til að nota geislakolsaðferð til að meta framleiðni í sjónum. Hún hlaut heiðursviðurkenningu Lýðveldissjóðs Alþingis fyrir framlag sitt til rannsókna á hafinu við Ísland.

„Þetta nýja og glæsilega skip eykur verulega möguleika Íslendinga til hafrannsókna,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Ég hef í mínu embætti lagt mikla áherslu á sjálfbæra nýtingu á auðlindum hafsins, þetta eru því einstaklega ánægjuleg tímamót. Ekki skemmir fyrir að skipið skuli nefnt eftir svo merkri vísindakonu og frumkvöðli sem Þórunn Þórðardóttir var og að nafngiftin skuli tilkynnt á sjálfum kvennaverkfallsdeginum“.

Stefnt er að afhendingu skipsins til Íslendinga í október 2024 og verður þá siglt til landsins. Þórunn Þórðardóttir HF 300 mun leysa af hólmi Bjarna Sæmundsson HF 30 sem hefur þjónað sem hafrannsóknaskip í 53 ár. Skipið er nær 70 m langt og um 13 m breitt. Mikil áhersla hefur verið lögð á að skipið verði eins umhverfisvænt og sparneytið og unnt er, um er að ræða tvíorkuskip með rafknúnum skrúfum. Meginorkugjafi er olía en einnig eru stórar rafhlöður um borð sem stuðla að betri orkunýtingu.

Mynd/aðsend