Íslandsmót yngri flokka í blaki, U14, U16 og U20 í stelpu og strákaflokki, fór fram á Akureyri um helgina. Um var að ræða aðra mótshelgina af þremur í mótaröðinni þar sem ungt blakfólk víðs vegar að af landinu etur kappi.

Stelpurnar í Blakfélagi Fjallabyggðar léku að þessu sinni með sameiginlegu liði Mývetninga í U16 flokki og stóðu sig afar vel. Liðið vann fjóra leiki 2–0, tapaði einum oddaleik 2–1 og beið lægri hlut í einum leik 2–0. Að lokum hafnaði liðið í þriðja sæti og steig þar með á verðlaunapall eftir öfluga frammistöðu.

Þriðja og síðasta mótshelgin fer fram á Húsavík dagana 8. til 10. maí þar sem úrslitin ráðast endanlega.

Á myndinni eru Maja, Hildur, Amelía, Maríon, Katla, Hanna og Jana.

Mynd: Facebook / Blakfélag Fjallabyggðar