Í gær samþykkti Alþingi frumvarp um lækkun virðisaukaskatts á tíðavörur og getnaðarvarnir úr efra þrepi í það neðra. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins sem var lagt fram af þingmönnum Pírata, Samfylkingar, Miðflokksins og Flokks fólksins. Þess má geta að málið var fyrst lagt fram af varaþingmanni Pírata, Oktavíu Hrund Jónsdóttur.
Við gildistöku laganna mun virðisaukaskattur á tíðavörur á borð við dömubindi, túrtappa og álfabikara, lækka úr 24% í 11%, enda eru þetta nauðsynjavörur frekar en munaðarvörur.