Bubbi Morthens sendi frá sér nýtt lag af væntanlegri plötu 14. janúar síðastliðinn.

Lagið heitir Á horni hamingjunnar og kemur út á öllum helstu streymisveitum.

Á horni hamingjunnar er annað lagið sem kemur út af væntanlegri plötu en Bubbi stefnir að útgáfu hennar 6. júní. 

Mynd eftir Marínó Flóvent

Á plötunni eru sömu hljóðfæraleikarar og á síðustu plötu Bubba, Regnbogans stræti. Það voru þeir Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari, Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðsleikari, Örn Eldjárn gítarleikari, Aron Steinn Ásbjarnarson saxófónleikari og Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommari.

Lagið verður leikið í þættinum Tíu Dropar sem er á dagskrá FM Trölla alla sunnudaga kl. 13 – 15.

Á horni hamingjunnar á Spotify

Aðsent.