Svavar Viðarsson fékk blóðtappa í heila og greindist með hjartagalla fyrir um ári síðan og voru honum ekki gefnar miklar líkur á bata.

,,Ég tók það ekki í mál að ég myndi ekki lifa veikindin af eða festast í þessu ástandi.
Ég leyfði mér ekki að hugsa út í það neikvæða sem gæti gerst heldur einblýndi ég á það jákvæða í lífinu og hvað ég hlakkaði til að gera þegar ég væri búinn að ná mér, sem var að taka upp og gefa út plötuna mína Engin lengur veit.’’

Það má svo sannarlega segja að sterkt hugarfar hans hafi komið honum í gegnum veikindin á þennan máta þar sem Svavar hafði náð fullum bata skömmu síðar og eltir nú ástríðu sína í tónlist og útivist.

Platan hans Engin lengur veit er 7 laga, þýðingarmikil, falleg og djúp plata sem lagt var í blóð, svita og tár.
Öll lögin eru þægileg, grípandi og vel útsett og ættu því allir að finna eitthvað að tengja við á plötunni.

Nú getur þú bæði fengið diskinn heimsendan eða hlaðið honum í tölvuna/símann.

Hægt er að nálgast plötuna hér:
Enginn lengur veit – Platan á Spotify

Upptökur fóru fram í desember 2021 – apríl 2022 hjá Nice Productions, apríl 2021 hjá Studio Pros og 2020 hjá Studio Leyni.
Hljómsveitin Nostal sá um hljóðfæraleik að mestu en aukalega komu að verkefninu þau Rakel Pálsdóttir (söngur og raddir), Tómas Jónsson (píanó), Sigurður Bjarki Gunnarsson (selló), Matthías Stefánsson (fiðla/víóla) og Vignir S. Vigfússon (kassagítar).

Hljómsveitin Nostal:
Söngur: Bjarni Ómar Haraldsson
Trommur: Ragnar Z Guðjónsson
Bassi: Svavar H. Viðarsson
Rafgítar: Baldur Ketilsson
Rafgítar: Þröstur Leósson
Hljómborð: Jón Karl Ólafsson
Upptökustjórn og útsetningar: Vignir S. Vigfússon
Mastering: Addi 800


Aðsent