HMS boðar til fundar í dag, þriðjudaginn 20. júní, kl. 12,  þar sem kynnt verða uppbyggingaráform íbúða fyrir tekju- og eignaminni.

Á fundinum verður tilkynnt um úthlutun stofnframlaga frá ríki og sveitarfélögum. Innviðaráðherra kynnir úthlutun stofnframlaga og stóraukið fjármagn stjórnvalda til byggingar íbúða á viðráðanlegu verði.

Dagskrá

11:45-12:00 Húsið opnar. Léttar veitingar í boði.

12:05-12:30 Leiðin að jafnvægi í húsnæðismálum

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra

12:30-12:40 Uppbyggingaráform sveitarfélaga

Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar

12:40-12:50 Fjölgun leiguíbúða á viðráðanlegu verði

Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri lánasviðs hjá HMS

Fundinum verður einnig streymt beint á hms.is/streymi.

Sjá nánar: HÉR