“Við hvetjum menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, fyrirtæki, ungt fólk og öll önnur sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og taka þátt.”
Mennta- og menningarsvið Rannís sækir Akureyri heim og býður til hádegisfundar í Hofi á Akureyri kl. 12–13 miðvikudaginn 4. maí.
Starfsfólk Rannís verður til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana í norrænu og evrópsku samstarfi nánar.
Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana, svo sem:
- Erasmus+,
- áætlun ESB fyrir öll skólastig og æskulýðsmál,
- Creative Europe,
- kvikmynda- og menningaráætlun ESB,
- Nordplus,
- menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar,
- og Uppbyggingarsjóð EES.
Vinsamlegast skráðu þig með því að smella hér svo súpa verði klár og smjér, nú og stólar lausir fyrir vér og þér.
Nánari upplýsingar má finna hér: Styrkir til menntunar og menningar | SSNE.is
Fólk má gjarnan vekja athygli á fundinum á heimasíðum og samfélagsmiðlum.
Hér er facebook viðburður til að melda sig á og fá áminningu þegar að fundi kemur, nú eða deila.
Aðsent