Nýlega kom út bókin „Handan dalanna“ eftir Kristínu Guðmundsdóttur, en hún er skrifuð til að hjálpa fólki af erlendum uppruna að ná betri tökum á íslensku máli á hagnýtan hátt og er komið á 3 stig. Bókin inniheldur 12 stuttar, sjálfstæðar og skemmtilegar sögur sem eru skrifaðar á skýrri og einfaldri íslensku.

Það sem gerir bókina einstaka er að hún var mótuð með hjálp fólks frá mörgum löndum sem þekkir af eigin raun hvað reynist erfiðast í náminu. Í bókinni er lögð áhersla á hversdagsleg orðasambönd og málshætti sem Íslendingar nota dags daglega – allt útskýrt með ítarlegum tilvísunum sem gerir námið auðveldara og markvissara. Auk þess prýða bókina teikningar sem glæða sögurnar lífi og hjálpa lesendum að muna nýjan orðaforða.

Þetta er sjöunda bók Kristínar og hafa bækurnar fengið frábærar viðtökur meðal kennara og vinnustaða. „Mjög aðgengilegar og hjálpa mikið til að auka lesskilning,“ segir Guðni A. Einarsson, framkvæmdastjóri Klofnings ehf., en fyrirtækið hefur nýtt fyrri bækur fyrir sitt starfsfólk.

Nánari upplýsingar og pantanir:


Mynd: aðsend