Í vikunni fær HSN senda 720 skammta af Pfizer bóluefninu. Það verður nýtt til að bólusetja seinni bólusetningu hjá þeim sem fengu fyrri skammt dagana 2.-5. mars en í þeim hópi eru m.a. þeir sem eru 80 ára og eldri.

Dagana 29.-31. mars er gert ráð fyrir að bólusetja seinni bólusetningu hjá þeim sem fengu bólusetningu dagana 9.-11. mars og halda áfram að bólusetja aldurshópinn 70-79 ára en meginreglan er að bólusetja þá elstu fyrst. Stefnt er að því að klára að bólusetja árganga 1944 og 1945 og ef hægt verður þá byrjum við á árgangi 1946.

Dagana 6.-9. apríl standa vonir til að halda áfram með að bólusetja amk. árganga 1946, 1947 og 1948.

Athygli er vakin á því að þetta er áætlun og sett fram með fyrirvara um breytingar.

Á Akureyri fer seinni bólusetning þeirra sem fengu fyrri bólusetninguna 2. mars fram á slökkvistöðinni.

Fólk verður boðað með sms skilaboðum þar sem tími og staðsetning kemur fram. Eru þeir sem von eiga á bólusetningu og aðstandendur þeirra að vera vakandi fyrir sms skilaboðum með boð um bólusetningu.

Þeir sem hafa ekki farsíma og fá því ekki boð með sms eru beðnir um að mæta í seinni bólusetninguna á slökkvistöðina 23. mars milli kl. 13-15

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi fær fólk boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.