Vinnuskólinn er fyrir ungmenni sem nýlokið hafa 8., 9. eða 10. bekk.

Dagsetningar:

Skólinn hefst þriðjudaginn 7. júní kl. 8.30 hjá öllum. Nemendur búsettir á Siglufirði mæta í Áhaldahús Fjallabyggðar. Nemendur búsettir á Ólafsfirði mæta í aðstöðu við Múlaveg (norðan við Skiltagerð).

Áætlaður lokadagur vinnuskólans er föstudaginn 29. júlí. Þó gefst ungmennum sem lokið hafa 10. bekk kostur á að vinna til 5. ágúst.

Skráning:

Ef unglingur á eftir að skrá sig í vinnuskólann má senda póst með skráningu í netfangið rikey@fjallabyggd.is til og með 13. júní en í netfangið haukur@fjallabyggd.is eftir 13. júní. Við skráningu þurfa upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang og bankareikning að koma fram.

Vakin er athygli á að árið sem 16 ára aldri er náð verður skattskylda eins og hjá fullorðnum og þarf launþegi að ráðstafa persónuafslætti til vinnuveitanda. Ráðstöfun persónuafsláttar er á ábyrgð launþega. Upplýsingar um hvernig ráðstafa eigi persónuafslætti verða sendar með tölvupósti.

Vinnutími:

Ungmenni sem nýlokið hafa 8. bekk: Mætt er fyrir hádegi fimm daga í viku, frá kl. 8:30 til 12:00 Einnig er hægt að haga vinnu þannig til ef einstaklingur vill frekar vinna frá kl. 13:00 – 16:30 þá er það í boði líka. Daglegur vinnutími reiknast 3,5 klst. eða 17,5 tímar á viku.

Ungmenni sem nýlokið hafa 9. bekk: Unnið frá kl. 8:30 til 12:00 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Unnið er 3,5 klst. fyrir hádegi á föstudögum. Samtals möguleiki á 31,5 klst. vinnu á viku.

Ungmenni sem nýlokið hafa 10. bekk: Unnið frá kl. 8:30 til 12:00 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Samtals möguleiki á 35 klst. vinnu á viku.

Vinnuskólinn áskilur sér rétt til að takmarka frekar vinnutíma ef skráning fer fram úr áætlunum.

Dagskrá:

Almenn störf og áherslur í vinnuskóla eru garðyrkja, gróðursetning, hirðing á lóðum og opnum svæðum bæjarins.

Laun:

Unglingar sem nýlokið hafa 8. bekk 35% af lfl. 117 kr. 855,72 pr.klst. (967,30 m/orl.) 3,5 klst. á dag mán-fös.
Unglingar sem nýlokið hafa 9. bekk 40% af lfl. 117 kr. 977,96 pr.klst. (1.105,49 m/orl.)  7 klst. á dag mán-fim 3,5 klst á fös.
Unglingar sem nýlokið hafa 10. bekk 60% af lfl. 117 kr. 1.466,94 pr.klst. (1.658,23 m/orl) 7,0 klst. á dag mán-fös