Átaksverkefni félagsþjónustu Austur Húnavatnssýslu, Húnaþings vestra, Skagafjarðar og Lögreglunnar á Norðurlandi vestra var ýtt úr vör 4. desember 2018.

Markmið samstarfsins er að auka þekkingar miðlun og bæta verklag til að taka á heimilisofbeldis málum, veita þolendum og gerendum betri þjónustu og vernda börn sem búa við heimilisofbeldi.

Það að Lögreglan og félagsmálayfirvöld á Norðurlandi vestra taki höndum saman gefur skýr skilaboð út í samfélagið “um að ofbeldi á heimilum sé ekki liðið” og gerir okkur sterkari í að takast á við þetta verkefni þannig að það skili meiri árangri.