Veiruskita í kúm– orsök staðfest í fyrsta skipti með raðgreiningu hér á landi.

Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur staðfest að landlæg veiruskita í kúm hér á landi er af völdum Bovine coronavirus, BovCoV. Síðla vetrar og í vor var veiruskita að ganga á kúabúum víða um land, þó aðallega á norðurlandi. Tekin var nokkur fjöldi sýna og var greiningu þeirra að ljúka. Lengi hefur verið grunur um að nautgripakórónuveira væri orsök veiruskitu og hefur það nú verið staðfest í fyrsta sinn hér á landi með raðgreiningu úr sýni sem tekið var á kúabúi á norðurlandi.

Veiruskita er bráðsmitandi sjúkdómur í nautgripum og finnst um allan heim. Mótefnamælingar hafa sýnt að sýking er mjög algeng í mjólkurkúm hérlendis og blossar veikin upp á mismunandi svæðum á landinu nokkuð reglulega. Sjúkdómurinn smitast með saur og slími frá nösum og breiðist hratt út innan hjarða. Smit berst mjög auðveldlega með óbeinum hætti milli hjarða með óhreinindum sem fylgja fólki og ýmsum hlutum, s.s. múlum, fatnaði, tækjum, bifreiðum o.s.frv. Oftast smitast allir næmir gripir á búinu á nokkrum dögum og sjúkdómurinn gengur yfir á einni til tveimur vikum. Sjúkdómurinn er ekki hættulegur fólki og hefur ekki áhrif á neysluhæfni afurða.

Afleiðingar sjúkdómsins geta verið alvarlegar og langvarandi þar sem sjúkdómurinn skerðir ónæmiskerfi kúnna þannig að þær verða viðkvæmari fyrir öðrum sjúkdómum, m.a. júgurbólgu og öðrum bakteríusýkingum. Þá eykur veiruskita hættu á doða hjá kúm sem komnar eru nálægt burði. Mikilvægt er að kýrnar hafi góðan aðgang að drykkjarvatni og salti. Kýr sem veikjast falla verulega í nyt á meðan þær eru veikar og komast sjaldan í fulla nyt aftur á yfirstandandi mjaltaskeiði. Auk þess hefur veikin neikvæð áhrif á frjósemi kúnna.

Mikilvægt er að bændur haldi uppi öflugum sóttvörnum á búum sínum, dragi úr flutningi gripa og tækja milli búa og lágmarki umgengni utanaðkomandi fólks. Nota ætti hlífðarfatnað og stígvél búsins eða einnota skó-/stígvélahlífar við allar heimsóknir.

Ítarefni


Mynd: mast.is