Trilludagar verða á Siglufirði 23. júlí nk. Á Trilludögum finna allir eitthvað við sitt hæfi. Gestum verður boðið á sjóstöng og í útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra. Kiwanismenn standa grillvaktina þar sem öllum verður boðið að smakka dýrindis fisk beint úr hafi. Skemmtileg afþreying bæði á sjó og landi fyrir börnin, hoppukastalar verða á Rauðkutúni. Tónlistin mun svo óma af Trillusviði yfir daginn.

Trilludagur 23. júlí
kl. 10:00 – 16:00 Frítt á sjóstöng fyrir alla fjölskylduna. Vesti og sjóstangir um borð.
Frítt á sjóstöng og útsýnissiglingu út á fjörðinn fagra fyrir alla fjölskylduna.
Veiðistangir og beita verða um borð. Allir koma í land með fisk á grillið.

Allir velkomnir að hafa með sína eigin veiðistöng og flotvesti ef þeir eiga heima.

Kl. 10:00 – 16:00 Grill á hafnarsvæðinu
Kiwanis menn á Siglufirði standa við götugrillið frá því fyrsta trilla leggur af stað þar til sú síðasta kemur í land.
Þegar komið er að landi er gert að aflanum af fagfólki og hann síðan grillaður. Gestir fá svo að smakka. Grillaðar verða pylsur að auki.

Stúlli og Danni á sviði
Hoppukastalar fyrir káta krakka á Rauðkutúni
Síldargengið fer rúnt um bæinn á gamla vörubílnum endar svo við Roaldsbrakka þar sem slegið verður upp síldarsöltun og bryggjuballi eins og þeim einum er lagið.

Eitthvað áhugavert að gerast alla Trilludagshelgina fyrir alla fjölskylduna

Söfn og setur verða opin
Málverka- og handverkssýningar
Veitingastaðir með eitthvað gott á matseðli
Ljóðlist og kveðskapur