Örlitlar breytingar verða á akstri skólarútunnar í Fjallabyggð dagana 6.-8. nóvember vegna skipulagsdags og vetrarfrís grunnskólans.

Á miðvikudag og fimmtudag falla út ferðir kl. 13:45 frá Siglufirði og kl. 14:20 frá Ólafsfirði og á föstudag falla út ferðir kl. 14:45 frá Siglufirði og kl. 15:25 frá Ólafsfirði.

 


Myndir: Fjallabyggð