Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir verður á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 26. janúar, kl. 8.00.

Stjórnandi þáttarins er Oskar Brown og hann sendir þáttinn út í beinni útsendingu frá Stúdíói 7 á Englandi.

Oskar spilar frábæra tónlist úr öllum áttum, kíkir á helstu fréttir, fer yfir helgarveðrið og ýmislegt fleira til þess að skemmta hlustendum FM Trölla.

Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.