Oskar Brown verður í beinni útsendingu frá Studio 7 á Englandi í fyrramálið frá kl. 8 með þáttinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir. Oskar verður í banastuði og ætlar að gera sitt besta til þess að skemmta hlustendum FM Trölla með skemmtilegum sögum og frábærri tónlist. Hann kíkir líka á forsíður blaðanna, bæði á Íslandi og í Bretlandi, og skoðar veðurspána fyrir helgina.  

Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.