Alls voru 74.423 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember sl. og fjölgaði þeim um 9.838 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 15,2%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 74,2% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.946 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 1.681 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Palestínu eða um 73,5% sem eru 228 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 538 einstaklingar með palestínskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 2.316 einstaklinga eða um 9,9% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 25.612 samtals.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.627 einstaklinga eða um 0,5%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. nóvember 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Sjá nánar á vefsíðu Þjóðskrár.