Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir verður á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 29. desember, kl. 8.

Oskar hefur eytt síðustu dögum í það að fara yfir lögin sem hljómuðu í þættinum á árinu og hann ætlar að leyfa ykkur að heyra sum þeirra aftur. Lögin, sem flest komu út á árinu, eru flutt af þekktum og óþekktum tónlistarmönnum víðsvegar að úr heiminum.

Endilega stillið á FM Trölla á morgun frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.