Þann 13. júlí eða í viku 28 fær HSN bóluefni sem notað verður til að klára allar seinni bólusetningar. Í viku 28 klárast bólusetningar að jafnaði fyrir utan nokkrar seinni bólusetningar.

Astra Zeneca og Pfizer bóluefni verður eingöngu notað fyrir seinni bólusetningar, ekki er hægt að hefja bólusetningar með þessum bóluefnum að svo stöddu.

Jansen bóluefni verður notað samkvæmt auglýstri opnun.

Mikilvægt er að fólk mæti í sínar seinni bólusetningar þegar þær eru boðaðar.

Bólusetningar hefjast aftur um miðjan ágúst og verða þá með breyttu sniði. Fyrirkomulag og dagsetningar verða auglýstar síðar.

Vegna fréttar sem birtist á vef Embættis landlæknis þann 28.6.2021 um bólusetningar barna vill HSN koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

HSN mun ekki boða þennan aldurshóp í bólusetningu.  
Foreldrar geta óskað eftir bólusetningu fyrir börn sín í gegnum heilsugæslustöðvarnar ef þau telja hana nauðsynlega en hún verður ekki framkvæmd fyrr en eftir sumarfrí, eftir miðjan ágúst.

Bólusetningar á Akureyri

Fara fram á Slökkvistöð Akureyrar.

Þriðjudaginn 13. júlí verður seinni bólusetning þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 23. júni og fyrr. Þetta eru einungis seinni bólusetningar. Bólusett verður frá kl: 12-15. ATH að þeir sem eru á ferðalagi mega koma um kl: 14:45 og athuga hvort er laust í seinni skammt.

Einnig verðum við með seinni Astra Zeneca bólusetningu fyrir þá sem fengu fyrri bólusetningu 27. maí og fyrr og hafa ekki komist í fyrri boðanir. Þetta er allra síðasti dagurinn sem við verðum með Astra Zeneca. Fólk á ferðalagi má koma kl 15:50 og athuga hvort eitthvað aukaefni er til. Það verður þó ekki um marga skammta að ræða. Bólusett verður með Astra Zeneca milli kl 15:20 og 15:50.

Janssen bóluefni er hægt að fá þriðjudaginn 13. júlí milli kl 12-16 á Slökkvistöðinni. ATH það er einungis fyrir 18 ára og eldri og er þetta bara einn skammtur. Þetta er síðasta skipti sem boðið verður upp á Janssen fyrir sumarfrí.

Vaccination against Covid-19 with Janssen vaccine is available for those who are 18 years and older on thuseday 13. of July from 12PM-16PM at Slökkvistöð Akureyrar in Akureyri.

Bólusetningar á öðrum starfstöðvum

  • Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi eiga allir að hafa fengið boð í fyrri bólusetningu og boð í seinni bólusetningar eru send út eftir því sem við á. Vinsamlegast hafið samband við ykkar heilsugæslu til að fá nánari upplýsingar.