Þegar farið er með börn í veirupróf er gott að þau viti við hverju er að búast.
- Gott er að vera með andlitsgrímu þegar komið er í veirupróf. Það er bæði til að verja sjálfan sig og aðra.
- Gott er að snerta ekki neitt að óþörfu.
- Sá sem tekur sýnið er í sérstökum fötum, með grímu og vörn fyrir andlitinu til að koma í veg fyrir smit.
- Oftast eru tekin tvö sýni annað úr hálsi og hitt úr nefkoki.
- Þegar sýni er tekið úr hálsi þarf að opna munninn vel og segja aaaa. Sumir kúgast aðeins þegar sýnið er tekið og það er allt í lagi.
- Þegar sýni er tekið úr nefi þarf að setja pinna í nefið. Það getur kitlað svolítið en er fljótt búið. Oftast tekur það bara sama tíma og tíminn sem það tekur að telja upp að fjórum.
- Þegar sýnatakan er búin er gott að spritta hendur.
Upplýsingarnar eru fengnar frá vefnum www.heilsuvera.is.