Nýjasta dagbók Unnar Valborgar Hilmarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra er komin á vefinn.
Vikan var óvenju stutt þar sem ég var í fríi að mestu á mánudag og þriðjudag. Miðvikudagurinn fór í fundahöld í Reykjavík svo viðvera á Ráðhúsi var með minnsta móti. Ég sat að morgni miðvikudags við tölvuna og sinnti hinum ýmsu verkefnum fyrir fundi dagsins. Megin verkefnið var að ljúka við umsókn í verkefnapottinn sértæk verkefni sóknaráætlunarsvæða á byggðaáætlun sem ég nefndi í síðustu dagbókarfærslu. Eftir hádegið fór ég á fund með RARIK annars vegar og með nýjum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hins vegar ásamt oddvita og formanni byggðarráðs.
Tilefni fundarins með RARIK var hið tíða rafmagnsleysi í sveitarfélaginu. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem við sitjum fund af þessum toga með forsvarsmönnum RARIK. Við mættum skilningi á fundinum og öll sammála því að ástandið væri ekki viðunandi og fengum fullvissu um að þau munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að komast fyrir þessar tíðu útleysingar. Það mun hins vegar taka tíma en vonandi verður hann ekki alltof langur. Fundurinn með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra var hugsaður til að kynna sveitarfélagið og helstu áherslumál í tengslum við samgöngumál og aðra málaflokka sem heyra undir ráðuneytið.
Fimmtudagsmorguninn hófst á fundi sveitarstjóra með Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna stöðu kjaraviðræðna. Þar á eftir sat ég fund ásamt Boga skipulags- og byggingafulltrúa og Knúti á Ósum með hönnuðunum Jóni Rafnari og Steinnunni sem eru að vinna að heildarhönnun svæðisins við Hvítserk. Afar spennandi verkefni. Fórum við yfir hugmyndavinnu þeirra sem þau munu svo vinna áfram með. Að þessum fundum loknum sinnti ég ýmsum verkefnum. Meðal annars gjöfum fyrir nýfædda íbúa í sveitarfélaginu. Við höfum gefið slíkar gjafir frá árinu 2023 og erum nú að bæta í gjöfina, lambúshettu frá 66N, barnabók og bókina Fyrstu mánuðirnir. Sjá nánar hér. Þessi siður hefur mælst vel fyrir og virkilega ánægjulegt að hitta nýbakaða foreldra og færa þeim gjöfina. Á árinu 2024 urðu gjafirnar 17 talsins. Í ár hefur þegar verið afhent ein slík gjöf. Vonandi verða þær sem flestar.
Á fimmtudeginum var vefsjá vegna vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar sett í loftið. Þar geta íbúar sett fram ábendingar um staði sem þarf að huga sérstaklega að umferðaröryggi, svo sem hámarkshraða, hvar eiga að vera gangbrautir, hvar eru blind horn o.s.frv. Við leggjum jafnframt áherslu á að gönguleiðir barna í skóla séu merktar inn á vefsjána þannig að hægt verði að huga sérstaklega að umferðaröryggismálum á þeim leiðum. Við hvetjum íbúa til að skrá ábendingar. Vefsjáin er aðgengileg hér.
Á föstudeginum hófust leikar á fundi með oddvita og formanni byggðarráðs venju samkvæmt. Að honum loknum funduðum við með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar til að fara yfir slysið sem varð við Kattarhrygg á dögunum. Þar lentu íbúar í Húnaþingi vestra í afar alvarlegu óhappi og ástæða til að fara yfir málið til að koma í veg fyrir að sambærilegt geti gerst aftur.
Á föstudeginum settum við í loftið auglýsingu um starf verkefnisstjóra umhverfismála. Sjá hér. Um er að ræða spennandi starf á umverfis-, veitu- og framkvæmdasviði og er næsti yfirmaður sviðsstjóri sviðsins. Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um starfið í gegnum alfred.is.
Ég vil að lokum vekja athygli á fundi sem haldinn verður þriðjudaginn 4. febrúar á vegum Qair energy um áform um uppbyggingu vindorkugarðs í landi Sólheima í Dalabyggð. Áhugasöm eru hvött til að mæta og kynna sér málið en sjónræn áhrif af vindmyllunum sem fyrirhugað er að reisa verða þónokkur í Húnaþingi vestra. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst kl. 17.