Grillaðir BBQ hamborgarar ( 8 hamborgarar um 150 g hver)

  • 1 kg nautahakk
  • 2 dl Hunt´s Orginal BBQ sauce
  • salt og pipar
  • 1/2 dl gult sinnep (yellow mustard, t.d. frá Hunt´s)
  • Tabasco
  • beikon
  • cheddar ostur

Hrærið öllu saman og mótið 8 hamborgara (um 150 g hver).

Hrærið saman gulu sinnepi og tabasco (magn eftir smekk, ca 1/4 úr teskeið).

Setjið hamborgarana á grillið og grillið beikonið samhliða. Penslið sinnepinu yfir hamborgarana á meðan þeir grillast og þegar þið snúið þeim við. Þegar hamborgararnir eru nánast fullgrillaðir er cheddar ostur settur yfir ásamt beikoni.

Setjið hamborgarabrauðin yfir hamborgarann (lokið ofan á hamborgarann og botninn ofan á lokið, sbr. myndina hér að neðan) og lokið grillinu í smá stund á meðan osturinn bráðnar og brauðið hitnar.


Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit