Kristín og Gunnar Smári

Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni frá kl 13.00 – 15.00. Sent verður beint frá UZboja í Póllandi og Siglufirði.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum. Að þessu sinni verður Kristín í Póllandi og Gunnar Smári á Siglufirði.

Þau spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr öllum áttum eins og þeirra er von og vísa.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is