Það verður mikið um að vera á Siglufirði næstu tvær helgar og Ljóðasetrið tekur að sjálfsögðu þátt í gleðinni.

Trilludagar verða dagana 26. – 28. júlí með fjölda viðburða og svo verður hið nýja Síldarævintýri um verslunarmannahelgina, dagana 1. – 4. ágúst, með dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Eins og sjá má hér að neðan verða spennandi viðburðir á Ljóðasetrinu þessar helgar sem alla virka daga.

Enginn aðgangseyrir, bara að njóta.

Dagskráin til 4. ágúst:

23. júlí Flutt verða ljóð um mæður
24. júlí Flutt verða ljóð sem fjalla um vikudagana
25. júlí  Þorvaldssynir flytja okkur nokkur lög
26. júlí  Sagðar verða siglfirskar gamansögur af sjónum
27. júlí  Flutt lög og ljóð sem tengjast sjónum
28. júlí Þórarinn Hannesson kveður eigin kvæðalög
29. júlí  Flutt ljóð um árstíðirnar fjórar
30. júlí  Flutt lög við ljóð ýmissa skáldkvenna
31. júlí  Flutt lög við ljóð eftir nokkur modernísk skáld
01. ág.  Flutt verða lög við ljóð eftir Siglfirðinga
02. ág.  Sagðar verða siglfirskar gamansögur
03. ág.  Lög við ljóð eftir ýmis skáld kl. 16.00
03. ág.  Sögustund fyrir börn 3 – 6 ára kl. 14.00
04. ág.  Sveinbjörn I. Baldvinsson og gestir kl. 16.00
04. ág.  Tónleikar fyrir börn Þórarinn og gestur kl. 14.00

 

Mynd: Þórarinn Hannesson