Í dag, laugardaginn 6. júlí, er dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði sem hér segir:
DANSAÐ Á KIRKJULOFTINU
Siglufjarðarkirkja 10.00-12.00
Íslenskir þjóðdansar og bandarískir kontradansar. Opið öllum.
STRÍÐ OG KLIÐUR
NÝ TÓNLIST FYRIR BLANDAÐAN KÓR
Siglufjarðarkirkja 14.00
Kórinn Kliður. Aðalstjórnandi: Jelena Ćirić.
MÆÐUR OG MEYJAR
ÍSLENSK ÞJÓÐLÖG
Siglufjarðarkirkja 15.30
Þjóðlagasveitin Úmbra. Hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 í flokki þjóðlagatónlistar.
Lilja Dögg Gunnarsdóttir söngur, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðla, Alexandra Kjeld kontrabassi og Arngerður María Árnadóttir harpa og orgel.
EKKERT FÆR SÖKKT ÞEIM EYJUM
SÆNSK ÞJÓÐLÖG FRÁ FINNLANDI
Þjóðlagasetrið 15.30
Systkinin Alli fiðla og Volter Pylkkö fiðla, Finnlandi. Aðgangur ókeypis.
EPICYCLE
TÓNLIST Í 2000 ÁR, ALLT FRÁ HILDEGARD VON BINGEN TIL HARRY PARTCH
ÚTSETT AF GYÐU VALTÝSDÓTTUR
Bátahúsið 17.00
Gyða Valtýsdóttir söngur og selló, Daníel Friðrik Böðvarsson gítar, Julian Sartorius trommur.
UPPSKERUHÁTÍÐ ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐAR
Síldarminjasafnið 20.30
Listamenn á þjóðlagahátíð koma fram. Sérstakir gestir: Astri Skarpengland þjóðlagasöngkona frá Noregi og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð.
BANDARÍSKT SVEITABALL MEÐ FELABOGA
DANSSTJÓRI: ALIX CORDRAY
Kaffihúsið Rauðka 23.00
Þjóðlagasveitin Felaboga, Noregi: Elizabeth Gaver fiðla, Mattias Thedens fiðla og banjo, Hans-Hinrich Thedens gítar og banjo, Paul Kirby banjo, Alix Cordray bassi.
Dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar má finna í heild hér.