22. þjóðlagahátíð á Siglufirði hófst miðvikudaginn 6. júlí á yndislegum sólardegi, tónlistarmenn og sjálfboðaliðar setja líflegan svip sinn á bæinn.

Á þjóðlagahátíðinni verða 17 tónleikar, 3 ókeypis námskeið og þjóðlagaakademía.

Veðrið leikur nú við þátttakendur og gesti hátíðarinnar, og verður af nógu að taka í dag.

Dagskrá hátíðarinnar laugardaginn 9. júlí er eftirfarandi.

Kirkjuloftið kl. 10.00-12.00
Dansar frá Krít. Kennarar: Rena Rasouli, Alexandros Rasoulis og George Rasoulis frá Krít. Opið öllum ókeypis.

Siglufjarðarkirkja kl. 14.00-15.00
Þjóðlagahljómsveitin Mandólín

Guðrún Árnadóttir fiðla
Elísabet Indra Ragnarsdóttir fiðla
Martin Kollmar klarinetta
Sigríður Ásta Árnadóttir harmónikka
Ástvaldur Traustason harmónikka
Óskar Sturluson gítar
Bjarni Bragi Kjartansson bassi

Þjóðlagasetrið kl. 15.30-16.30
Kvæðamannakaffi

Rímþursar og frenjur kveða Rímu um stígvélaða köttinn eftir Skúla Pálsson (ort 2021). Aðgangur ókeypis.

Ragnheiður Ólafsdóttir hefur umsjón


Siglufjarðarkirkja kl. 17.00-18.00
Kvennakórinn Vox Feminae – Hátt yfir fjöll

Íslensk og erlend kórlög fyrir kvennakór

Stjórnandi Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað

Siglufjarðarkirkja 20.30-22.30
Uppskeruhátíð. Listamenn af hátíðinni koma fram

Sérstakur heiðursgestur: Zvezdana Novaković frá Slóveníu.

Siglufjarðarkirkja kl. 23.00-24.00
Nætursöngvar frá Krít

Rena Rasouli, Alexandros Rasoulis og George Rasoulis leika og syngja lög frá grísku eyjunni Krít.

Tónleikapassi eða miðar á staka tónleika.

Nánar um tilboð og afsláttarkjör.

Forsíðumynd/af facebooksíðu Þjóðlagahátíðarinnar