Á 355. fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 14. febrúar 2023 voru samþykktar tillögur Umhverfis- og dreifbýlisráðs að breytingum á viðmiðunarreglum snjómoksturs í Dalvíkurbyggð.
Helstu breytingar sem gerðar eru frá fyrri viðmiðunarreglum eru eftirfarandi:
- Brimnesbraut að Lokastíg er bætt í fyrsta forgang í mokstri á götum.
- Gangstétt eftir allri Svarfaðarbraut er sett í fyrsta forgang í mokstri á gönguleiðum/gangstéttum.
- Breytingar eru gerðar á þátttöku Dalvíkurbyggðar í mokstri á heimreiðum. Nú tekur sveitarfélagið þátt í að greiða niður mokstur á heimreiðum í allt að helming af fyrsta klukkutíma í mokstri, þ.e. allt að 30 mínútur.
Þessar breytingar á reglum um heimreiðamokstur eru tilraunaverkefni fram á sumar 2023.
Viðmiðunarreglur snjómoksturs í Dalvíkurbyggð og kort af forgangsröðun snjómoksturs má nálgast hér.