Daníel Pétur Daníelsson hefur verið ráðinn til starfa við Síldarminjasafnið til eins árs, úr hópi fimmtán umsækjenda.

Daníel er að ljúka námi í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum, hefur lokið viðburðastjórnun og landvarðaréttindum auk þess sem hann tók um árabil þátt í síldarsöltunum á planinu við Róaldsbrakka.

Daníel hefur störf í janúar næstkomandi og býður stjórn safnsins og verðandi samstarfsfólk hann velkominn og óskar honum velfarnaðar í starfi.