Matvælastofnun vekur athygli hundaeigenda á að fundist hafa kóprabjöllur (Necrobia rufipes) og lirfur þeirra í innfluttu hundafóðri. Um er að ræða 2 lotur (nr. 11-2019 og 12-2019) af Hill´s gæludýrafóðri sem heitir Prescription Diet, canine Z/D í 10 kg sekkjum.

Innflytjandinn Vistor hf. hefur innkallað þessar lotur í samráði við Matvælastofnun.
Viðskiptavinir sem hafa keypt umræddar lotur af þessu hundafóðri geta skilað því til þess dýralæknis sem fóðrið var keypt af eða í Suðurhraun 12a í Garðabæ á lager Distica.

Hafi hundaeigendur orðið varir við torkennilegar lirfur eða litlar bjöllur í hundafóðri hjá sér er eindregið bent á að þrífa vel bæði fóðurílát sem og umhverfi þeirra. Einnig er mikilvægt að senda ábendingar til Matvælastofnunar og söluaðila fóðursins. Þessar bjöllur geta valdið skaða á heimilum sbr. ítarefni að neðan. Hundum stafar þó ekki hætta af áti þessara bjallna eða lirfa þeirra.

 

 

 

Forsíðumynd: Kristín Sigurjónsdóttir