Þann 2. – 4. okt. síðastliðinn var ferðakaupstefnan Vestnorden haldin á Akureyri.

Vestnorden ferðakaupstefnan, sem er samstarfsverkefni Grænlands, Færeyja og Íslands, er haldin árlega til skiptis í löndunum þremur. Á kaupstefnunni koma saman öll helstu ferðaþjónustufyrirtæki frá löndunum til að kynna vöruframboð sitt fyrir erlendum ferðaheildsölum.

Markaðsstofa Ólafsfjarðar tók sig til og var með bás á kaupstefnunni. Þar kynntu níu fyrirtæki í Ólafsfirði starfsemi sína og það sem Ólafsfjörður hefur upp á að bjóða í afþreyingu og náttúrufegurð. Fulltrúi fyrir hönd Ólafsfirðinga var Bjarney Lea Guðmundsdóttir.

Bæklingar sem Markaðsstofa Ólafsfjarðar fór með á Vestnorden

 

Aðeins eitt fyrirtæki frá Siglufirði tók þátt í kaupstefnunni, Sigló Hótel, hvorki Fjallabyggð né Tröllaskagi voru kynnt sem heild.

Trölli.is hafði samband við Lindu Leu Bogadóttur Markaðs- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar til að spyrja hverju sætti að fyrirtæki á Siglufirði voru með svona dræma þátttöku. Kvaðst hún hafa gert stikkprufu með því að tala við 4 aðila og sýndu þeir málinu mikinn áhuga.

Ekki gekk að fá fyrirtæki á Siglufirði saman. Markaðsstofa Ólafsfjarðar hafnaði beiðni Lindu Leu um að taka bæklinga frá fyrirtækjum á Siglufirði með á kaupstefnuna gegn gjaldi.

Ólafsfirðingar fengu mikla athygli á kaupstefnunni og er vinna í gangi með áframhaldandi kynningu hjá þeim bæði við íslenska og erlenda ferðaþjónustu aðila. Ida Semey og Bjarney Lea sögðu í samtali við Trölla, að allur undirbúningur fyrirtækjanna í Ólafsfirði var unninn í sjálfboðavinnu og frábært að fá svona mörg fyrirtæki í liðið.

Nokkur byggðarlög á Norðurlandi tóku þátt í Vestnorden eins og t.d. Skagafjörður, Húnaþing, Mývatn og tveir básar voru frá Dalvík.

Vestnorden Travel Mart er mikilvægasta ferðakaupstefnan sem haldin er á Norður-Atlantshafssvæðinu

 

Haft var samband við Gest Hansson eiganda ferðaþjónustufyrirtækisins Top Mountaineering á Siglufirði, kvaðst hann hafa verið mjög svekktur yfir því að ekki var samvinna á milli bæjarkjarna. Einnig tjáði hann Trölla.is að það hefðu verið stofnuð samtök  hagsmunaaðila í Fjallabyggð, Ólafsfirðingar klufu sig út úr þeirri samvinnu og stofnuðu Markaðsstofu Ólafsfjarðar.

Einnig var haft samband við Hálfdán Sveinsson eiganda Siglunes Guesthouse, sagðist hann gjarnan hafa viljað taka þátt í kaupstefnunni ef hafður hefði verið sameiginlegur bás fyrir Fjallabyggð. Bæði Gestur og Hálfdán telja að kostnaður við þátttöku sé of mikill fyrir smærri fyrirtæki en hefðu fagnað því að taka þátt í samvinnu við önnur fyrirtæki.

Á fundi Bæjarráðs Fjallabyggðar þann 15. okt. kom fram eftirfarandi bókun.

“5. 1809091 – Umsókn um stuðning Fjallabyggðar vegna þátttöku í ferðaráðstefnunni Vestnorden 2018 á Akureyri.
Lögð fram umsókn um styrk frá Markaðsstofu Ólafsfjarðar vegna kynningar níu ferðaþjónustuaðila í Ólafsfirði á starfsemi fyrirtækja sinna á ferðaráðstefnunni Vestnorden 2018.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk í formi húsaleigu í Tjarnarborg vegna stofnfundar Markaðsstofu Ólafsfjarðar og tveggja vinnufunda sem haldnir voru í Tjarnarborg. Styrkur kr. 45.000.- verður tekinn af deild 13610, lykli 4921 sem rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2018″.

Töluverð umræða hefur verið manna á meðal um  hverju sætti að ekki var samvinna milli byggðarkjarnanna og sitt sýnist hverjum um það. En ljóst er að Ólafsfirðingar hafa af krafti og dugnaði komið sér rækilega á kortið með þátttöku sinni á Vestnorden.

 

Myndir í frétt: í einkaeign
Forsíðuynd: Kristín Sigurjónsdóttir