Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Björgunarsveitin Strönd hafa gengið frá samkomulagi um uppsetningu vettvangsliðs á Skagaströnd. Samkomulagið gengur út á samstarf um þjálfun og tækjabúnað vettvangsliðs á vegum Björgunarsveitarinnar.

Heilbrigðisstofnunin mun kosta menntun og þjálfun vettvangsliða en á næstu vikum fer tíu manna hópur frá Skagaströnd í vettvangsliðanám á vegum Sjúkraflutningaskólans. Heilbrigðisstofnun Norðurlands  veitir síðan vettvangsliðum endurmenntun eftir þörfum og leggur einnig til nauðsynlegan tækjabúnað til viðbótar þeim búnaði sem er í eigu björgunarsveitarinnar. Er almenn ánægja innan björgunarsveitarinnar með þetta samkomulag.

Hlutverk vettvangsliða er hugsað þannig að vettvangsliði geti verið sá sem fyrstur er á vettvang og verði fær um að veita fyrstu bráðaþjónustu áður en sjúkraflutningamenn koma á staðinn og frekari læknisaðstoð berst.

Markmiðið er að svæðið verði betur í stakk búið til að bregðast við í neyð og þannig styrkt heilbrigðisþjónustu svæðisins.

Í ljósi undangenginna áfalla tengdum illviðri er vert að fagna þessum samningi sem styrkja mun bæði Björgunarsveitina Strönd og heilbrigðisþjónustuna á staðnum íbúunum til heilla.

Á forsíðumynd eru: Jón Helgi Björnsson forstjóri HSN, Örn Ragnarsson framkvæmdastjóri lækninga á HSN, Einar Óli Fossdal forstöðumaður sjúkraflutninga HSN á Blönduósi, Reynir Lýðsson formaður björgunarsveitarinnar Strandar og Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri Skagastrandar.