Yfirlýsing Landssambands bakarameistara  

Landssamband bakarameistara, LABAK, gerir alvarlegar athugasemdir við ummæli framkvæmdastjóra OECD þess efnis að bakaraiðn ætti ekki að njóta lögverndar. Ummælin féllu í gær á kynningarfundi um niðurstöður samkeppnismats OECD á samkeppnishindrunum í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. 

Landssamband bakarameistara gerir enn fremur alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Efnahags- og framfarastofnunar OECD um framkvæmd á sjálfstæðu samkeppnismati á því regluverki sem gildir á sviðum byggingarstarfsemi og ferðaþjónustu á Íslandi. Í niðurstöðum sínum til úrbóta á þeim sviðum leyfir stofnunin sér að setja fram tillögu þess efnis að afnema eigi löggildingu bakara. Ekki er annað hægt en að furða sig á þessum starfsháttum stofnunarinnar sem með þessari tillögu virðist fara langt út fyrir verksvið sitt.   

Landssamband bakarameistara bendir á að í íslensku samfélagi er almennt lögð rík áhersla á fagmennsku, gæði, öryggi, neytendavernd og menntun. Kapp er einnig lagt á að auka fjölda iðnmenntaðra og mæta þannig þörf markaðarins fyrir slíkt vinnuafl. Lögverndun iðngreina eru í raun ákveðin undirstaða í þeirri vegferð enda er markmið þeirra að tryggja gæði sem og fagleg og örugg vinnubrögð í iðngreinum. 

Landssamband bakarameistara fagnar allri umræðu um mikilvægi löggildingar enda er tilgangur þess kerfis að ábyrgjast gæði og fagmennsku. Hins vegar er mikilvægt að sú umræða fari fram á réttum vettvangi en ekki kastað fram með óábyrgum hætti eins og Efnahags- og framfarastofnun OECD leyfir sér að gera.