Vegna hertra sóttvarnarreglna heilbrigðisyfirvalda og þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð milli fólks, verður grímuskylda um borð í Hríseyjarferjunni frá og með deginum í dag, þriðjudaginn 20. október.

Farþegar eru því beðnir að útvega sér grímur áður en þeir koma um borð.